„Lággjaldaflugfélagið“ Wow Air reynist vera töluvert dýrara en Icelandair ætli fólk til Boston í Bandaríkjunum í sumar og þurfi að taka farangur með.

Það er Icelandair en ekki Wow Air sem býður flug til Boston á lægra verði ef farangur er með í för.

Það er Icelandair en ekki Wow Air sem býður flug til Boston á lægra verði ef farangur er með í för.

Nú þegar samkeppni er á ný komin á vestur um haf er ráð að fylgjast grannt með þróun mála og það munum við sannarlega gera sem endranær. Við tókum stikkprufu um miðjan febrúar og endurtökum nú leikinn.

Önnur skoðun okkar á flugfargjöldum til og frá Boston í júní, júlí og ágúst leiðir í ljós að Wow Air er að bjóða lægra verð en Icelandair sé alls enginn farangur með í för. Munurinn þó tiltölulega lítill og ótrúlega lítill sé miðað við að eldsneytisnotkun nýlegra Airbus véla Wow Air er sögð vera 25 til 30 prósent minni en eldri Boeing véla sem Icelandair notar. Það eitt og sér ætti að gera Wow Air auðvelt um vik að bjóða mun lægri fargjöld.

Vestur um haf býður Icelandair sem fyrr farþegum sínum að lágmarki að taka með tvær 23 kílóa töskur og sé tekið mið af því að Boston er ein helsta verslunarborg Íslendinga er fráleitt annað en taka farangur með. En með því að bæta við tveimur töskum hjá Wow Air, 20 kíló hvor um sig, reynist Icelandair bjóða töluvert lægra verð á þessari leið.

Þetta má sjá á töflunni hér að neðan. Leitað á bókunarvélum beggja aðila samtímis að lægsta verði á flugi fram og aftur í hverjum mánuði fyrir sig. Tveimur töskum bætt við hjá farþega Wow Air til jafns við það sem Icelandair býður.

Þetta segir sig dálítið sjálft. Ef hugmyndin er bara að stoppa í fimm mínútur og njóta er Wow Air að bjóða lægra verð. En þurfi nærur og sokka með til lengri dvalar plús að hugmyndin sé nú að kíkja „aðeins“ í verslanir er engin spurning hvert skal beina viðskiptum.

Niðurstöðurnar nú stemma líka vel við sams konar könnun okkar um miðjan febrúar síðastliðinn sem sjá má hér. Þá líka kom Wow Air mun verr út ef farþegar þurfa á tösku eða töskum að halda.

* Leitað samtímis á vef Icelandair og Wow Air kl.15:34 föstudaginn 10.apríl 2015.