Wow Air hefur gert stóran og góðan skurk í að veita hugsanlegum viðskiptavinum betri þjónustu en þar er nú hægt á tiltölulega fljótlegan hátt að fletta upp lægsta fargjaldi. Gamla konan í Vatnsmýrinni hins vegar er með allt niður um sig í þeim efnum.

Það er ekki einfalt mál að finna þetta fræga „verð frá“ hjá Icelandair
Okkar barst skeyti fyrir skömmu þar sem aðili forvitnaðist um hversu eðlilegt væri að Icelandair gæti birt auglýsingu ofan á auglýsingu þar sem tiltekinn er áfangastaður og lægsta verð aðra leiðina þangað. Þessi aðili tiltók auglýsingu um München þar sem lágmarksverð á flugi var sagt 19.900 krónur. Sá hugsaði sér gott til glóðar að bjóða betri helmingnum í stutta helgarferð til Bæjaralands aðeins til að komast að því að þetta lægsta verð sem flugfélagið auglýsir finnst ekki fyrr en í október. Aðeins minna spennandi að rómantískast um í þeim mánuði.
Við gegnum úr skugga um þetta og mikið rétt. Lægsta verð aðra leiðina er 19.900 krónur og við finnum heldur ekkert fargjald nálægt 19.900 krónum þangað til 4. október. Ótrúleg tilviljun að 4. október er líka lokadagur hinnar frægu Októberfest sem þekkt er í borginni.
Viðkomandi var þó ekki að leita að ódýrri ferð á þýska hátíð heldur vildi vita hvers vegna flugfélag getur auglýst eitthvað lágmarksverð sem er svo jafnvel ekki í boði fyrr sex til tólf mánuði fram í tímann.
Þetta getur ekki flokkast sem blekkingar beint enda umrætt fargjald sannarlega í boði. Hins vegar er vissulega verið að henda nokkru ryki í augu fólks og auðvitað má spyrja hvers vegna flugfélagi leyfist að auglýsa fargjald sem ekki er í boði mánuðum saman. Ímyndum okkur augnablik hvort matvöruverslun kæmist upp með slíkt. Spænsk lúxusskinka frá 99 krónum? En ófáanleg fyrr en í janúar á næsta ári!
Kannski ekki alveg sambærilegt og þó. Báðir aðilar eru að selja neytendum vöru.
Allra lægsta fargjald sem við fundum við leit á vef Icelandair fram að 4. október kostaði 24.555 og það aðeins á einni dagsetningu. Að öðru leyti kostar flug aðra leiðina til München þetta 35 til 50 þúsund krónur eða helmingi hærra en auglýst lægsta verð.
Neytendalög vernda okkur ekkert fyrir svona markaðsfræðingabraski. Sem fyrr er hið eina sem við getum gert til að lýsa yfir óánægju með eitthvað er að snúa viðskiptum okkar annað. Eða fara í skó Geirmundar Valtýssonar, fara aldrei út fyrir landsteinanna og skrá okkur í Framsóknarflokkinn. Þá er glasið alltaf hálffullt.







