Fararheill framkvæmdi litla og óvísindalega könnun í fermingarveislu fyrir stuttu og forvitnuðumst hvort fólk vissi að það er mikið dýrara að versla vestanhafs í aprílmánuði 2015 en það var í aprílmánuði 2014. Enginn hafði glóru.

Vissir þú að beggja vegna Atlantsála hefur verð hækkað töluvert síðustu misserin?
Sjaldan eða lítið er rætt um gengi íslensku krónunnar eða hvort hagstætt eða óhagstætt er að versla erlendis þá og þá stundina í stærri fjölmiðlum landsins. Ætli margir sem vestur um haf fara til að kaupa fatnað og glingur á fjölskylduna viti að það kostar nú 25% meira að versla í Boston, New York, Orlando, Seattle, Denver, Minneapolis, Washington og öðrum borgum Bandaríkjanna en það var fyrir aðeins tólf mánuðum síðan?
Hið merkilega er að okkur finnst ennþá allt ódýrt að mestu leyti í tilteknum verslunum þrátt fyrir fjórðungshækkun á verðinu. Í apríl 2014 var hægt að kaupa einn dollar bandarískan fyrir 111 krónur. Í dag kostar sami dollari rétt tæpar 140 krónur. Það er vægast sagt væn hækkun á ekki lengri tíma.
Ekki batnar það að líta þá austur til Bretlands eða Skotlands ef verslun er á dagskránni. Í apríl fyrir rétt tveimur árum kostaði eitt pund okkur 177 krónur. Í dag kostar sama pund tæplega 203 krónur. Það er 15% hækkun á pundinu breska gagnvart þeirri íslensku. Sem jú þýðir að allt í Bretlandi er 15 prósent dýrara nú en þegar ný stjórn tók við taumum hér í landinu.
Eini gjaldmiðillinn sem ekki hefur hækkað fram úr hófi gagnvart íslensku krónunni er evran og því ráð að komast í verslanir á meginlandinu ef fram heldur sem horfir.







