Tíðindi

Mjög dregur úr ferðaframboði á klakanum

  05/09/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Heimur versnandi fer eða allavega framboðið í flugi frá landinu. Bæði lágfargjaldaflugfélögin Wow Air og Iceland Express draga feitt úr framboði ferða á næstu vikum auk þess sem mörg þau flugfélög sem hingað flugu í sumar hætta fram á næsta vor.

Þetta er leiðinlegur tími fyrir ferðaglaða Frónbúa og líklega líka fyrir Iceland Express og Wow Air og sennilegast íslenska ríkið líka. Töluverðum fjárhæðum er búið að eyða að kynna Ísland sem ferðamannastað yfir vetrartímann og nú pakka flugfélögin, að Icelandair undanskildu, saman að mestu.

Á vef Iceland Express má sjá að framboð áfangastaða minnkar duglega strax næstu vikurnar eins og sést á meðfylgjandi myndum. Fer úr fimmtán áfangastöðum sem í boði hafa verið í sumar niður í þrjá. Aðeins verður komist til London, Kaupmannahafnar og Alicante þennan veturinn með Iceland Express.

Sömu sögu er að segja af Wow Air sem þegar hefur dregið seglin verulega saman og er tiltölulega óljóst á vef þeirra hvað nákvæmlega verður í boði þar þegar fram á dimman veturinn er komið.

Ekki þar fyrir að Icelandair sé alveg saklaust heldur. Þó ekki fækki þeir áfangastöðum sínum þá minnkar tíðni ferða og það verður að segjast að allnokkrir áfangastaðir þess flugfélags heilla sennilega ekki marga Íslendinga nú á næstu mánuðum.

Hér að neðan má sjá sorglegt dæmi um hvaða tími fer í hönd. Annars vegar ferðaframboð Iceland Express í sumar sem leið og hin myndin ferðaframboð sama fyrirtækis í vetur. Guð hjálpi Íslandi.