Pistlar

Eru farangursgjöld svo slæm?

  04/09/2012júní 10th, 2021No Comments

Það vakti töluverða athygli fyrir skömmu þegar Wow Air tók upp á því að krefjast greiðslu fyrir allan innritaðan farangur viðskiptavina sinna. Hingað til hafa farþegar félagsins fengið að hafa með sér eina 20 kílóa tösku eins og reyndin er ennþá hjá samkeppnisaðilunum Icelandair og Iceland Express.

Sitt sýnist hverjum um þá tilhögun Wow Air að heimta greiðslu fyrir allan innritaðan farangur fólks

Auðvitað er þetta pirrandi og Wow Air fjarri því eina flugfélagið sem krefur farþega um slíkt gjald. Það gera velflest lágfargjaldaflugfélög erlend þó kostnaðurinn sé reyndar mjög misjafn og Wow sé dýrt í samanburðinum.

En er þetta svo ýkja slæmt þegar allt kemur til alls?

Gallarnir eru að við farþegar getum ekki tekið eins mikið drasl með okkur eða keypt of mikið drasl erlendis og komið með heim án þess að borga fyrir.

Plúsinn að vélar Wow Air eru mun léttari, menga minna og kannski, og það er vissulega stórt kannski, lækkar þetta fargjöldin eða heldur þeim lágum. Ef 200 farþegar taka bara með sér 20 kíló í stað 40 kílóa sparar flugfélagið stórfé og svo fer það eftir yfirstjórn þess flugfélags hvort farþegarnir njóta þess svo í fargjaldaverði eða hvort sá sparnaður fer beint í vasa eigenda.

Hins vegar skal ritstjórn Fararheill viðurkenna að fyrir sitt leyti er alveg galið hvað fólk, og ekki bara Íslendingar, taka með sér af drasli erlendis. Fjórar til fimm stórar ferðatöskur í vikuferð til Alicante er náttúrulega ekkert annað en geðbilun því ekki þarf mikinn fatnað þar og þar finnast líka verslanir síðast þegar ritstjórn gáði ef eitthvað vantar sárlega. Það er engu að síður raunin eins og hver sem flýgur til Alicante eða heim getur vottað um.

Einn galli er hins vegar á skyndiálagningu Wow Air og hafa skal í huga að þessi gjaldtaka er tilkomin mínútum eftir að nýr forstjóri tók við kyndlinum. Það er að nú þurfa farþegar í pakkaferðum Wow Ferða að punga extra út líka og engin verð á vef þeirrar ferðaskrifstofa eru því lengur rétt. Það er jú enginn að fara í ferðalag án þess að hafa neitt með sér.

Þá er kjánalegt að í golfferðum Wow Ferða kemst golfsettið frítt með en ein einasta taska alls ekki. Hún kostar aukalega. Útlit er fyrir að þessi ákvörðun hafi verið tekin í skyndi af hálfu Wow Air.