golfTíðindi

Veikir illa séðir hjá Spánargolfi

  05/09/2012febrúar 3rd, 2021No Comments

Nokkuð fróðlegt er að lesa svokallaðar ráðleggingar hjá fyrirtæki sem auglýsir sig undir nafninu Spánargolf og segist í samvinnu við Iceland Express. Þær ráðleggingar snúast um að viðskiptavinir skuli halda fullri heilsu svo þeir séu ekki að eyðileggja neitt fyrir öðrum.

Jamm og jæja.

Ritstjórn Fararheill kann engin deili á því fólki sem kennir sig við Spánargolf og býður upp á golfferðalög til Spánar í samstarfi við Iceland Express að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.

Þar er einnig hægt að lesa að Spánargolf sé „deild í spænsku fyrirtæki Sunsure sem er staðsett í El Valle golfþorpinu og sérhæfir sig í leigu á íbúðarhúsnæði til lengri og skemmri tíma. Auk þess að bjóða margvíslega þjónustu fyrir eigendur íbúðarhúsnæðis á svæðinu.“

Sérstaklega er þó ógnvekjandi að lesa „ráðleggingar“ aðstandenda Spánargolfs. Þar segir:

Slys eða veikindi. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu heilir heilsu þannig að þeir valdi ekki öðrum óþægindum. Ef þátttakandi slasast eða veikist ber hann sjálfur ábyrgð á þeim kostnaði sem af því kann að hljótast. Öll aðstoð sem mögulegt er að veita við slíkar aðstæður verða veittar af starfsmönnum á vettvangi.

Tryggingar. Við ráðleggjum viðskiptavinum að huga að tryggingamálum sínum áður en lagt er í ferðina. Greiðslu með kreditkorti fylgir oft ókeypis ferðatrygging. Kynntu þér vel skilmála þess kreditkortafyrirtækis sem þú skiptir við.

Sjúkratryggingar. Til öryggis er ráðlagt að sækja um sjúkratryggingakort á vef Tryggingastofnunar Ríkisins.

Mun þetta vera eina fyrirtækið sem Fararheill er kunnugt um sem fer í raun fram á að enginn veikist eða slasist í ferðum á vegum Spánargolfs og gefur í skyn að komi eitthvað fyrir sé viðskiptavinurinn alfarið á eigin vegum, fyrirtækið beri enga ábyrgð og muni lítið eða ekki aðstoða.

Það var og . Leit leiðir í ljós að fyrirtækið Sunsure er alhliða ræstinga- og umhirðufyrirtæki fyrir eigendur íbúða og húsa í Murcia héraði á Spáni.

Íslensk lög kveða á um að ekki megi mismuna fólki vegna aðstæðan, litarháttar, fötlunar eða annars slíks en ekki verður betur séð en til að mynda fatlaðir séu ekki ýkja velkomnir hjá Spánargolfi. Þeir náttúrulega „trufla“ aðra sem eru heilir heilsu eða hvað? En nú gilda mikið til sömu lög á Spáni.

Ritstjórn Fararheill ætlar ekki að vara við slíkum fyrirtækjum heldur leyfa lesendum að dæma slíkt. En það er aðeins ein ástæða fyrir að þetta fyrirtæki tekur svo sterklega fram að fólk skuli nú hafa heilsuna í lagi í El Valle golfþorpinu. Hún er sú að ekki er um formlegt ferðaþjónustufyrirtæki að ræða enda finnst hvergi á vef þess að það hafi formlegt leyfi til slíks.

Vefur Spánargolfs hér.