Þeir kalla þetta Plús vikunnar og er um að ræða þrjár ferðir í maí þar sem gist er á ágætu fjögurra stjörnu hóteli, Gran Hotel Bali, með hálfu fæði. Hægt að velja um þriggja, fjögurra og ellefu daga ferðir og verð á mann miðað við tvo í þá ódýrustu er 70.483 krónur.
Látum liggja milli hluta að kostnaður per dag fyrir tvo einstaklinga í þá ferð er þannig tæpar 47 þúsund krónur sem er ólíklegt að falli undir gott tilboð hjá mörgum Íslendingum. Verra er að ferðin er alls ekki til Benidorm eins og látið er að liggja.
Hér bryddar ferðaskrifstofan upp á því sama og þeir gera með ferðir sínar til Almería sem eru í raun ferðir til Roquetas de Mar. Í þessu tilfelli er hótelið í næsta bæ við Benidorm, Cala de Finestrat. Sá er smábær en ekki eiginleg borg eins og Benidorm og því fjarri því eins mikið um að vera eða gera.
Á milli þessara staða ganga strætisvagnar reglulega en labbitúr tekur allt að klukkustund í miðbæ Benidorm. Sé dvalið fram eftir kvöldi þarf leigubíl á milli og sá kostnaður fljótur að telja.








