Sé það eitthvað eitt sem sýnir umfram annað að Íslendingar eru farnir að ferðast eins og áður eru það tölur um kortanotkun landans á erlendri grundu. Tölur Valitor frá janúarmánuði sýna aldeilis merkilega hluti.
Þær sýna nánast samsvarandi aukningu á kortanotkun erlendis og hér heima. Með öðrum orðum var fólk þann mánuðinn allavega að auka kortanotkun sína erlendis um 7,8 prósent meðan hún jókst hér heima um 8 prósent. Í báðum tilfellum er miðað við sama tíma árið áður.
Þetta er heldur ekki afbrigðilegt á neinn hátt því sama var uppi á teningnum mánuði áður í desember. Þá jukust viðskipti Íslendinga með kort sín erlendis miðað við sama mánuð árið áður líka um 7,6 prósent.








