Flugfélagið Wow Air býður til miðnættis í kvöld, 15. apríl, lægra verð á farmiðum en venjulega til Kaupmannahafnar og London með flugtíma í júní.

Tilboðið hljóðar upp á 13.800 krónur aðra leiðina með sköttum og gjöldum en fyrirtækið er enn þeirrar skoðunar að svokallað bókunargjald upp á 900 krónur skipti farþega sína engu máli og auglýsa því ferðir sínar á 12.900 krónur. Markaðsmenn þarna á bæ kyrfilega fastir í Hagkaupssálfræðinni og vekur furðu að fara ekki alla leið með þetta og selja á 12.999 krónur.

Með einni tösku af nærum með í för hækkar heildargjald aðra leiðina í 16.700 krónur svo lengi sem farangursheimildin er keypt um leið og bókað er. Með því er þetta tilboðsverð Wow einungis þrjú þúsund krónum ódýrara en hefðbundið fargjald Icelandair til London í sama mánuði svo dæmi sé tekið.