Tíðindi

Icelandair í sæng með fleirum

  24/04/2013ágúst 15th, 2013No Comments

Þeim fjölgar ört rekkjunautum Icelandair sem í dag tilkynnti um samstarf við kanadíska flugfélagið Westjet. Fyrir var flugfélagið í samkrulli við bandarísku flugfélögin Alaskan Airlines, JetBlue og Frontier Airlines og hefur auk þess lengi átt í samstarfi við SAS.

Westjet er nýr samstarfsaðili Icelandair en færir okkur Íslendingum fátt eitt og lítið

Westjet er nýr samstarfsaðili Icelandair en færir okkur Íslendingum fátt eitt og lítið

Fyrir fölbleikan Íslendinginn skiptir þetta ekki miklu máli. Þetta þýðir ekki hagstæðari díl til Kanada dragi einhver þá ályktun. Þetta þýðir jú að einfaldara er að kaupa farmiða til þeirra borga og bæja sem Westjet flýgur til innan heimalandsins en það aftur á móti þarf ekki að þýða besta verðið.

Framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair segir Westjet og Icelandair eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á góða og ferska þjónustu. Sem er svipuð staðhæfing og að forstjóri Bónus segist leggja áherslu á matvæli í verslunum sínum. Innihaldslausir stafir.

[/vc_column_text] [/vc_column] [/vc_row]
[vc_message color=“alert-info“ el_position=“first last“]
  • Westjet er þriggja stjörnu lággjalda-flugfélag samkvæmt skrám Skytrax
  • Westjet fær 6,5 í einkunn meðal farþega sinna fyrir þjónustu og verð
  • Westjet býður þrjú farrými: econo, flex og plus
  • Heimilt er að taka eina tösku upp að 20 kílóum án aukagjalds á öllum farrýmum.
  • Taska í viðbót við það kostar milli 20 og 30 dollara eða um 3.500 krónur.
  • Heimasíðan
[/vc_message]