Um tíma hefur legið ljóst fyrir að aðaleigandi Wow Air, Skúli Mogensen, hafi hug á duglegri samkeppni við risann Icelandair í farþegaflugi til og frá landinu. Með tilliti til að framtíðarspár meta hvað mestu vaxtarmöguleika íslenskrar ferðaþjónustu vestanhafs kemur ekki á óvart að Wow hefur sótt um flugrekstrarleyfi með það sérstaklega fyrir augum að fljúga til og frá Norður-Ameríku.

Fái Wow Air flugrekstrarleyfi mun fyrirtækið bjóða upp á flug til Norður-Ameríku innan tíðar

Fái Wow Air flugrekstrarleyfi mun fyrirtækið bjóða upp á flug til Norður-Ameríku innan tíðar

Þetta eru góðar fréttir fyrir ferðaþyrsta Íslendinga að mati Fararheill enda sýnir og sannar sagan ítrekað að ekkert nema raunveruleg samkeppni á flugleiðum leiðir til hagstæðara verðlags. Nægir að nefna verðlag á flugi til Boston þann tíma sem Iceland Express keppti á þeirri flugleið en þá sýndu grófir útreikningar 15 til 20 prósenta lækkun á verði.

Icelandair hefur svo annað dæmi sé tekið lengi vel komist upp með að eiga flugleiðina til Orlando á Flórídaskaga skuldlaust með manni og mús. Liðinn vetur var vart komist þangað undir hundrað þúsund krónum á mann að lágmarki. Þá eru teljandi á fingrum einhents manns þau skipti sem flugfélagið atarna hefur boðið sólarhringstilboð til Orlando. Þau eru jafn fáséð og geirfuglinn.

Hvort Wow Air sér Orlando fyrir sér sem áfangastað skal ósagt látið en fram hefur komið að fyrst um sinn verði flogið á sömu áfangastaði og Icelandair. Það eru líklega Boston og New York.