Ef aðeins stæði í Evrópureglum að tefjist flug um 30 mínútur eða svo byrji skaðabætur að kikka inn. Þá væri Icelandair að sjá fram á töluverð fjárútlát þennan daginn.
Ekki finnst stafur um neitt sérstakt vesen eða tafir á vef Icelandair en raunin engu að síður sú að allnokkrar flugferðir félagsins voru töluvert seinni á ferð en eðlilegt getur talist.
Þetta má glöggt sjá á meðfylgjandi skjáskotum af vef Ísavía:
Hmmm. Rúmlega klukkustundar seinkun til London og Köben og tveggja og hálfrar stundar seinkun á brottför til Glasgow. Þrjár rellur langt á eftir áætlun? Væri ekki eðlilegt að afsaka tafirnar og skýra þær fyrir fólki á vef flugfélagsins? Eða finnst hámenntuðu markaðsfólki Icelandair bara gaman að láta fólk bíða lon og don í óvissu?
En auðvitað kostar það fjögurra stunda útkall að fá Jón markaðsmann Jónsson til að mæta í vinnu á laugardegi til að gefa viðskiptavinum tíma dagsins og helstu upplýsingar. Yfirstjórn Icelandair gefur ekkert grænt ljós á eðlilega þjónustu við viðskiptavini á þessum síðustu og verstu…