Fyrir eigi svo alllöngu síðan vakti furðu eins úr ritstjórn á leið úr landi með Icelandair að á brottfararskjám í Leifsstöð kom tilkynning um að halda til hliðs, go to gate, 65 mínútum áður en áætluð brottför var á dagskrá. Auðvitað þýddi það bara langa bið í afdalasal í flugstöðinni þar sem engin sæti voru laus og ekki fór vélin í loftið á tíma heldur.

Kallað út í vel óvenju snemma? Það eru ráð við því 🙂
Brottfararhlið 23C í Leifsstöð er ekki skemmtilegur staður til að vera á. Ekki í fimm mínútur og alls ekki í klukkustund. Þar eru færri sæti en hægt er að telja á fingrum og tám, mun lengri raðir í þær takmörkuðu búllur sem selja eitthvað ætilegt og allir eru FÚLL Á MÓTI því engin mannleg vera elskar hangs yfir engu.
Ef það þýðir mun lakari þjónustu og upplifun fyrir viðskiptavininn, hvers vegna er Icelandair þá að hóa í ferðafólk til hliðs með klukkustundar fyrirvara?
Í fyrsta lagi er Icelandair slétt sama um viðskiptavininn eins og rúmlega hundrað greinar okkar hér staðfesta. Í öðru lagi er Icelandair slétt sama um viðskiptavininn og í þriðja lagi er Icelandair mögulega að reyna að fiffa seinkunartölur svo flugfélagið komi betur út í alþjóðasamanburði. Þetta síðastnefnda skiptir extra máli nú þegar fleiri hundruð flugfélög berjast um sama kúnnann og hafa velflest það sama að bjóða.
Sök sér ef umrædd vél hefði farið fyrr í loftið vegna þess að allir voru komnir um borð löngu fyrir áætlun. Það væri hægt að fallast á að það væri plús því flugstöðvar, og ekki síst Leifsstöð, eru neikvæðir staðir fyrir mannlega sál. Svo var þó ekki í ofangreindu tilviki. Byrjað að hleypa um borð 45 mínútum eftir fyrstu „go to gate“ skilaboðin og rellan í loftið þremur mínútum á eftir áætlun.
Með öðrum orðum: glatað stöff!
Ef við gefum Icelandair smá breik þá er ekki útilokað að það séu tilmæli frá Isavía, sem rekur Leifsstöð, að rúlla fólki sem fyrst að brottfararhliðum fjarri aðalsalnum. Það er jú vel troðið í flugstöðinni allan sólarhringinn þessa síðustu og verstu. Betra kannski að hafa vel troðið í öllum göngum og sölum en að hafa allt klabbið á sama staðnum í tómu kraðaki.
Loftferðalögum samkvæmt má rella ekki fara frá hliði fyrir opinberan uppgefinn brottfarartíma. Ímyndið ykkur ef strætisvagnabílstjóri rúllaði bara af stað frá stoppistöð tíu mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma bara af því að þá fær hann bónus frá yfirstjórn fyrir að vera stundvís með afbrigðum. Það gengi ekki lengi og áætlunarvélar eru ekkert annað en almenningsvagnar ef út í er farið.
En fyrir þau okkar sem neita að láta hafa okkur að fíflum er eitt ágætt ráð til að koma í veg fyrir að brottför sé fyrr en auglýst er. Innritaðu töskudruslu eða tvær og engin áætlunarvél hjá neinu flugfélagi leggur af stað fyrr en þú ert sest/-ur í sætið fyrir brottför. Loftferðalög kveða nefninlega líka á um að flugtak er óheimilt ef um borð er farangur sem ekki tilheyrir neinum sem telst vera kominn um borð 😉
Þú mátt því anda sallarólega ef þú hefur innritað farangur í flug frá Leifsstöð, og annars staðar, og engin þörf á að hlaupa til hliðs með klukkustundar fyrirvara. Ekki aldeilis. Sýndu þig fimmtán mínútum fyrir brottfarartíma og enginn getur sagt neitt 🙂







