Svo fyrirsögnin kom þér á óvart? Kannski vegna þess að þú ert nýkomin/nn úr þessari dýrindis ferð til Tenerife sem bókuð var gegnum Heimsferðir og flogið var með Primera Air.

Næst þegar þú bókar ferð hjá Heimsferðum með Primera Air er óvitlaust að gauka svona tíu þúsund krónum að flugliðunum. Þeir starfa fyrir sultarlaun.

Hugsandi lesendum Fararheill.is kemur alls ekki á óvart að flugfélagið Primera Air er að fá það óþvegið frá annars handónýtum verkalýðsfélögum á Íslandi þessi dægrin. Eina umhugsunarefnið er hvers vegna það þarf verkfallsboðun Flugfreyjufélags Íslands til að fjölmiðlar Íslands vakni til meðvitundar um að skipulagt þrælahald er í gangi hjá Andra Má Ingólfssyni, helsta eiganda Primera Air og Heimsferða.

Reyndar hafa hvorki verkalýðsfélög né fjölmiðlar talað um þrælahald per se heldur einungis minnst á að flugfélagið er að notast við erlenda flugliða og greiða þeim skítalaun. Andri Már getur því lögsótt okkur fyrir að gefa í skyn að hann sé þrælahaldari…

Nema hann vinnur það mál ekki 😉

Aðallega sökum þess að 60 þúsund króna grunnlaun fyrir flugliðastörf í vélum Primera Air er ekkert annað en þrælahald. Þrælahald er jú í grunninn að borga engin laun eða skítalaun fyrir mikla og tiltölulega erfiða vinnu. Og Andri var svo ósvífinn að sparka litháísku og tékknesku flugþjónunum sínum, sem komu inn þegar Primera Air henti íslensku flugliðum sínum á haugana á sínum tíma, vegna þess að dúndrandi efnahagskrísa í Grikklandi gaf feitt færi á að fá fólk til starfa á sultarlaunum.

Þvílíkur skíthaugur er Andri Már að það er tímaspursmál hvenær hann hlýtur önnur verðlaun frá Frjálsri Verslun sem stórkostlegasti viðskiptafrömuður ársins.

Kauði mættur strax á næstu atvinnuleysisskrifstofu í Grikklandi eftir hrun þess lands til að ráða fólk og nú kemur fram í skjölum sem Alþýðusamband Íslands hefur undir höndum að þessi skíthæll er að greiða heilar 60 ÞÚSUND KRÓNUR í grunnlaun á mánuði.

Jamm og jæja. Kannski oggupons skiljanlegt að ráða allra, allra ódýrasta vinnuafl sem í boði er þegar hart er í ári. En svo er ekki. Primera Air Travel Group hefur verið að skila allsæmilegum milljónum í vasa eigenda um langa hríð. Enginn eigandi þess að vinna heilan mánuð fyrir 60 þúsund kallinn.

Farðu nú að hugsa lesandi góður. Góður díll hjá Heimsferðum/Primera Air steinhættir að vera góður díll þegar þú veist að fyrirtækið er að greiða starfsmönnum sínum sultarlaun 24/7/365. Sérstaklega sé mið tekið af því að meðallaun í Grikklandi árið 2016, töluvert undir meðaltaxta fyrri ára, námu 125 þúsund krónum á mánuði. Primera Air er því að greiða 108 prósent lægri grunnlaun en gengur og gerist í Grikklandi.

Viðbjóður!