Vill ekki Costco vinsamlegast koma á fót innlendu flugfélagi svona í og með innflutningi á helmingi ódýrari vörum en landinn hefur fengið síðustu ár og áratugi? Því ekki viljum við eiga viðskipti við erlenda innanlandsflugfélagið Air Iceland Connect!

Orðið rassasleikjur nær vel yfir forsvarsmenn Icelandair sem fórna góðu og gildu íslensku nafni helsta innanlands flugfélags landsins fyrir túristann.
Hmmmmmmmmmm. Flugfélag Íslands ekki alveg að gera sig samkvæmt síldarplebbanum Björgólfi Jóhannssyni né Toyota-forstjóranum Úlfari Steindórssyni.
Ósagt skal sagt hvaða hugsanlegu drykkir eða efni voru á borðum Icelandair Group þegar ákveðið var að nefna innanlandsflugfélagið Flugfélag Íslands upp á nýtt og það á hinu ylhýra saxneska tungumáli ensku í þokkabót.
Air Iceland Connect heitir Flugfélag Íslands þessi dægrin og segir nafnið engum neitt. Ekki hefur vesalings menntamálaráðherra, sem á að sjá um að íslenskt mál sé í hávegum haft, sagt múkk um málið enda vinir hans og vandamenn hluthafar og stjórnendur móðurfyrirtækisins Icelandair.
Ekki segir nafnið neitt Íslendingum sem vilja fljúga innanlands en ekki „tengjast“ gegnum Ísland eins og nafnið gefur til kynna. Varla heldur útlendingum sem gætu haldið að Air Iceland Connect sé nýtt lággjaldaflugfélag með iPad og nettengingu fyrir alla farþega.
Því miður fellur feit álagning á flugi og ferðum ekki niður eins og gamla nafngiftin. Air Iceland Connect hefur í engu breytt okurverðlagningu á innanlandsfluginu samkvæmt nettri úttekt. Þvert á móti eiginlega. Túristinn er jú líklegri til að punga út extra fyrir ferð norður eða austur en aumur landinn. Það þarf ekki auka álögur ríkisins til að gera ferðir innanlands dýrari fyrir innlenda og erlenda. Icelandair sér alfarið um það.







