Tilkynnt var í dag að Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, hefði látið af störfum og við kafteinssætinu tæki Birgir Jónsson, sem var forstjóri IE, á árunum 2004 til 2006.
Eru Matthíasi þökkuð vel unnin störf í sömu tilkynningu.
Það var á vakt Matthíasar sem orðspor Iceland Express beið frekari hnekki eins og Fararheill.is hefur ítrekað greint frá síðustu mánuði. Miklar tafir og vandræði hafa skapast af mikilli stækkun fyrirtækisins og illa hefur gengið að bæta það sem miður hefur farið.
Frekara hnekki, því ákveðinn fjöldi fólks hefur aldrei notað þjónustu flugfélagsins eftir að það eignaðist Pálmi Haraldsson, áður kenndur við Fons, undir kringumstæðum sem mjög voru gagnrýndar. Hefur Pálmi þessi áður sett flugfélag á hausinn. Það átti sér stað 2008 þegar fyrirtækið Sterling Airlines var lýst gjaldþrota.
Birgir Jónsson stóð sig vel á sínum tíma við stjórn IE en það var einmitt á því tímabili sem farandsalinn jók hægt og bítandi bæði þjónustu sína og úrval ferða.
Segir Birgir í tilkynningu hlakka til að koma að áframhaldandi uppbyggingu hjá fyrirtækinu.
„Ég mun leggja áherslu á að auka gæði þeirrar mikilvægu þjónustu sem félagið bíður upp á. Það verða gerðar ákveðnar breytingar á rekstrinum sem koma munu í ljós á næstu vikum og mánuðum.“






