Tíðindi

Hatt ofan fyrir Heimsferðum

  20/09/2011janúar 13th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsa nú sértilboð á síðustu sætum sínum til Prag í Tékklandi í þriggja daga ferð þann 29. september. Er þar um tvo fyrir einn að ræða því viðskiptavinur fær tvo flugsæti á verði eins.

Það er af hinu góða en ekki síður vekur athygli ritstjórnar Fararheill að þetta auglýsir ferðaskrifstofan með tíu daga fyrirvara.

Hefur Fararheill mjög gagnrýnt gegnum tíðina þá áráttu Heimsferða, og reyndar fleiri ferðaþjónustufyrirtækja, að auglýsa laus sæti á tilboðsverði með allt niður í tveggja og þriggja daga fyrirvara. Það segir sig sjálft að svo lítill fyrirvari kallar á ýmsar tilfærslur og stress hjá velflestum áhugasömum og útilokar þá sem til að mynda hafa gleymt að endurnýja vegabréfið sitt. Er þetta mjög til eftirbreytni.

Ferðin til Prag fæst á 39.900 krónur eins og sjá má nánar hér.

Þá er ferðaskrifstofan einnig með tilboð til Bodrum í Tyrklandi í 12 nátta ferð eftir viku þann 27. september. Fæst sú ferð á 159.900 á mann og gist á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu.