Alla jafna þarf að spara nokkra mánuði ellegar bæta við sig starfi kvöld og helgar til að eiga þess kost að njóta lífsins á Indlandi í góðum túr. Slíkar ferðir yfirleitt ekki alveg gefins en við fundum þó eina sem fer nærri.

Auðvelt að fíla svona ferð. Mynd Sandeepachetan

Auðvelt að fíla svona ferð. Mynd Sandeepachetan

Holiday Place í Bretlandi er að bjóða vikuferðir til Indlands þetta haustið á sérdeilis fínum prís eða niður í 155 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman frá London eða kringum 190 þúsund á mann alls með flugi frá Íslandi og heim aftur. Tveir saman njóta þannig þriggja fínna áfangastaða á Indlandi fyrir 380 þúsund krónur. Þarna er alls um 200 þúsund króna afslátt að ræða frá hefðbundnu verði í Bretlandi og tæplega hálfri milljón króna undir því verði sem verið var að bjóða til Indlands af innlendum ferðaskrifstofum síðasta vetur en þær reyndar aðeins lengri.

Flogið er með Emirates eða Qatar Airlines frá London til Nýju-Delí og eftir góðan túr um þá miklu borg er ferðinni haldið áfram Agra þar sem spásserað er um borg og bí áður en hringnum er lokað með för til Jaipur. Gist á fjögurra og fimm stjörnu hótelum og auðvitað komið við á stórkostlegum stöðum á borð við Taj Mahal, Amer Fort og Qutab Minar turninn fyrir utan að boðið er í sérstaka rajasthani veislu og hestaferð og fílaferð innifaldar líka. Æði gott finnst okkur.

Ferðirnar eru í boði frá september og fram yfir áramótin en ofangreint verð fæst aðeins þann 8. október og í byrjun desember þegar þetta er skrifað. Hærra verð er fyrir ferðir á öðrum dagsetningum. Þá er líka í boði að lengja ferðina ef svo ber undir gegn gjaldi líka.