Hér er nú aldeilis komin fram hugmynd fyrir alla þá sem vita ekkert hvað þeir eiga að gera við peningana sína. Fljúga aðra leiðina með Delta Airlines frá Keflavík til New York í ágúst og greiða fyrir eitthvað hæsta verð sem nokkurn tímann hefur sést á almenningsfarrými.

Miðað við að klukkustund í flugi með Delta til New York kostar yfir 70 þúsund krónur á almenningsfarrými í ágúst hlýtur flugið að vera þokkalega spes. Skjáskot
Ok, kannski ekki dýrasta flugsæti í heimi en allavega dýrara en ritstjórn Fararheill hefur áður séð í boði héðan frá Íslandi. Fyrir sex stunda flugið til NYog það á almenningnum í þokkabót skal greiða litlar 340.420 krónur samkvæmt vef Delta.
Þetta er dágóð upphæð hjá bandaríska flugfélaginu sem tekur sérstaklega fram að á economy farrými fáist „low affordable fare with perks.“ Perks í þessu tilfelli sennilega hjartaáfall yfir verðlagningunni.
Sé þessari upphæð deilt niður á sex stundir kostar hver og ein klukkustund í loftinu með Delta rúmlega 70 þúsund krónur eða svipað verð og Icelandair býður alla aðra leiðina út til New York á sama tíma.







