Misyndismenn hafa verið að gera sig gildandi á nokkrum vinsælum ferðamannastöðum í Malasíu síðustu daga og vikur og þykir hættan af þeim nóg til að margar þjóðir hafa gefið út ferðaviðvaranir til þegna sinna.

Eyjan Mabul er ein þeirra sem varað er við að heimsækja nú sökum hryðjuverkaárása en margir af vinsælustu köfunarstöðum heims eru í næsta nágrenni.
Um er að ræða herskáa vígamenn sem hafa undanfarna sólarhringa drepið nokkra lögregluþjóna og öryggisverði í og við strendur og staði þar sem ferðafólk nýtur lífsins. Sömuleiðis hafa vinsælir köfunarstaðir við strendur Sabah verið skotspónn ofbeldismannanna og víst þykir að komist þeir í færi við erlenda ferðamenn sé voðinn vís. Þremur erlendum ferðamönnum hefur verið rænt undanfarna tólf mánuði minnst einn drepinn með köldu blóðu á hóteli sínu.
Óljós er á þessari stundu hverjir standa þarna að baki eða hvort einhver sérstök ástæða er fyrir árásunum nú. En sem fyrr er ágætt að hafa vaðið fyrir neðan sig og setja ferðalög til Malasíu á ís í bili.







