Einhver allra verstu mistök sem landinn getur gert er að verða sér ekki úti um evrópskt sjúkratryggingakort áður en lönd Evrópu eru lögð undir fótinn. Slíkt kort í veski getur þýtt muninn á umtalsverðu veseni og fjárútlátum eða ekki.

Það margborgar sig að tryggja sér eitt sjúkratryggingakort ef ferðinni er heitið til Evrópu. Mynd Lydia

Það margborgar sig að tryggja sér eitt sjúkratryggingakort ef ferðinni er heitið til Evrópu. Mynd Lydia

Flest okkar eru það heppin að veikjast ekki alvarlega erlendis og sem betur fer eru fáir Íslendingar sem lenda í slysum í Evrópu. En gamla góða evrópskra sjúkratryggingakortið getur sparað heilmikinn hausverk aðstandenda og fórnarlamba þegar og ef eitthvað alvarlegt bjátar á.

Við þekkjum dæmi þess að Íslendingar sem ekki voru með sjúkratryggingakortið handhægt hafa þurft að greiða fyrir aðgerð og sjúkrahúsvist og þurft að hafa töluvert fyrir þó síðar meir hafi endurgreiðsla skilað sér. Þar er reyndar um að ræða aðila sem ekki höfðu sérstakar ferðatryggingar sem flest okkar hafa nú reyndar.

Engu að síður er varinn góður og ekki síst vegna þess að þetta hefur versnað til muna í mörgum löndum Evrópu í kjölfar efnahagslægðarinnar sem enn ríkir á stöku stöðum. Það hefur orðið til þess að stjórnvöld á ýmsum stöðum hafa hert ýmsar reglur og hækka gjaldskrá. Nú síðast í Bretlandi þar sem frá og með 2015 verða allir sem ekki framvísa kortinu, og þar með sanna að þeir séu Evrópubúar, að greiða 50 prósent álag ofan á kostnað við aðgerð eða vegna veikinda.

Með tilliti til að sjúkratryggingakortið er frítt er galið að eiga ekki eitt svoleiðis í veskinu til vonar og vara. Muna samt að þau gilda einungis í þrjú ár í senn. Hægt er að sækja um það hér.