Af og til detta inn fýsileg ferðatilboð til staða sem ekki eru mikið á kortum íslenskra ferðaskrifstofa. Eitt slíkt á gullnar strendur Maya rivíerunnar í Mexíkó í viku með öllu er nú í boði með feitum afslætti.

Gran Bahia Principe er eitt af mörgum kostulegum hótelum meðfram Maya ströndinni við Mexíkóflóa. Mynd Gran Bahia
Þó grípa þurfi þessa gæs strax er fjöldinn allur af dagsetningum í boði að velja um í þessari vikuferð bresku ferðaskrifstofunnar Useeka. Flogið frá Gatwick til Mexíkó og gist á fimm stjörnu strandhóteli og þar allt innifalið sem hugur girnist.
Verðið? Aðeins rúmlega 150 þúsund krónur á mann miðað við gengi dagsins en þar vantar auðvitað flug til og frá London. En með góðum fyrirvara er lítið mál að finna það flug á lágmarksverði. Í öllu falli eru 180 þúsund krónur á mann ekki dýrara en ferðaskrifstofurnar eru að bjóða til Tyrklands þetta sumarið svo dæmi sé tekið.







