Þegar ferðaskrifstofan Nazar hóf starfsemi hér á landi fyrr í vetur var viðkvæðið að fyrirtækið ætlaði ekki í verðsamkeppni heldur taka mið af verðlagningu ferðaskrifstofa hérlendis. Það gæti útskýrt hvers vegna sama ferðalag, sama dag í sama tíma á sama hóteli kostar fjögurra manna fjölskyldu á Íslandi 177 þúsund krónum meira en norsk fjölskylda þarf að greiða.
Það er sláandi verðmunur einn og sér en við skulum ekki gleyma að laun í Noregi eru almennt 30 til 40 prósent hærri en á Íslandi. Að teknu tilliti til þess er slíkur verðmunur ekkert annað en ofurgræðgi og brjálæði.
Hér er um að ræða vikuferð til Side í Tyrklandi þar sem dvalið er á hinu ágæta Pegasus World í fjölskylduherbergi og allt innifalið eins og þar stendur.
Við bárum saman vikuferð á háannatíma þann 23. júlí en þann dag eru bæði ferðir í boði frá Osló og Keflavík. Fjögurra manna fjölskylda og bæði börn undir tólf ára aldri.
Á norska vef Nazar kostar þessi ákveðna ferð fjölskylduna alla alls 23.110 NOK eða 432 þúsund krónur íslenskar eins og sjá má hér:
Skoðun svo nákvæmlega sömu ferð fyrir sömu fjölskyldu sama dag á sama hóteli frá Keflavík:
Verðmunurinn á þessum tveimur ferðum nemur alls rúmum 177 þúsund krónum. En sé grannt skoðað kemur fleira í ljós. Takið eftir tímasetningu flugsins frá Osló og aftur þangað. Flogið út eldsnemma morguns, lent laust eftir hádegi í Tyrklandi og allir farnir í laugina um miðjan dag. Haldið heim aftur um hádegi.
En Íslendingar eru ekki svo heppnir. Okkur er boðið upp á kvöld- og næturflug og farþegar lenda í Tyrklandi klukkan 04:30 um miðja nótt með stírur í augun og enn er niðamyrkur þegar komið er á hótelið. Sérlega skemmtilegur tími með ung börn með í för.
En ekki halda að það sé aðeins frá Noregi sem er vænlegra að ferðast með Nazar. Taflan hér sýnir verð á fimm dagsetningum í sumar á ferð og gist á Pegasus World.
Þegar komið er fram í júlí þarf fjögurra manna fjölskyldan að greiða 588 þúsund krónur fyrir vikupakkann. Sama fjölskylda gæti keypt sams konar ferð með Nazar í Danmörku á tæpar 380 þúsund krónur. Sé litið til Svíþjóðar fæst sama vikuferð þaðan lægst á 399.110 krónur miðað við miðgengi dags 26. febrúar. Að síðustu þá finnast stöku dagsetningar frá Osló í vikuferð þar sem börn greiða ekki krónu. Á þeim dagsetningum gæti fjögurra manna fjölskyldan komist í gott vikufrí fyrir 298 þúsund krónur eða hartnær helmingi lægra verð en fæst héðan.
Vissulega er lengra flug til og frá Íslandi en frá hinum Norðurlöndunum en verðmunurinn er engu að síður afar drjúgur svo ekki sé meira sagt.
* Öll verð miðast við miðgengi 26. febrúar. Samanburður gerður kl 22 þann 26. febrúar.














