Séu einhverjir Íslendingar meðal farþega vélar Icelandair frá Bergen/Þrándheimi þennan daginn eru þeir líklega að fá flugið endurgreitt nenni þeir að bera sig eftir því. Fimm stunda seinkun er 99% ávísun á bætur.

Rúmlega fimm stunda töf á flugi Icelandair frá Noregi þennan daginn. Mynd Woodys Aeroimages

Rúmlega fimm stunda töf á flugi Icelandair frá Noregi þennan daginn. Mynd Woodys Aeroimages

Tafir eru á því flugi auk annarra hjá flugfélaginu en vélin sem átti að lenda í Keflavík klukkan hálf fjögur í dag mun ekki snerta íslenska jörð fyrr en rétt fyrir klukkan 21 eða rúmlega fimm stundum of seint miðað við upprunalega áætlun samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar.

Um tafirnar má lesa á vef Icelandair en sem fyrr er þar ekki stafur um hvers vegna þær verða. Þar sem önnur flugfélög sem fljúga sömu leið eru á tíma má heita víst að þetta sé einskorðað við Icelandair en ekki vegna veðurs eða annarra „óviðráðanlegra orsaka.“ Sem aftur merkir að farþegar sem í þessu lenda eiga rétt á bótum.

Bæturnar miðast við lengd flugs og geta verið nokkrir tugþúsundkallar eða sem samsvarar kostnaði við flugið. Um að gera að bera sig eftir því annaðhvort hjá flugfélaginu sjálfu eða gegnum Samgöngustofu ef starfsfólk Icelandair hundsar þá beiðni.