Nákvæmlega ekkert er að frétta af rannsókn yfirvalda á nauðlendingu Boeing-vélar Icelandair í maí á síðasta ári þegar eitt hjól vélarinnar féll af við flugtak og vélinni snúið við.

Á vef Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem það er kallað í dag er reyndar ekki staf um málið að finna. Hvorki í fréttaefni né heldur bráðabrigðaskýrslur af nokkru tagi.

Fararheill fékk þær upplýsingar í janúar síðastliðnum að málið væri í rannsókn og þær upplýsingar sem fram hefðu komið yrðu birtar í ársskýrslu stofnunarinnar. Sú er enn ekki komin út þó nú sé árið 2013 hálfnað.

Með tilliti til alvarleika atviksins og aldurs véla Icelandair telur ritstjórn Fararheill eðlilegt að rannsakendur taki nú að sér smá yfirvinnu og klári málið. Ekki síst í kjölfar skýrslu stofnunarinnar um alvarlegt flugatvik hjá Icelandair árið 2009 þar sem í ljós kom alvarleg handvömm af hálfu viðhaldsdeildar Icelandair.