Ferðaúrval innlendra aðila næsta haust og vetur verður líklega eins og hin síðari ár bundið við örfáar fokdýrar „sérferðir“, og hefðbundna áfangastaði á skíðasvæði, Kanarí og golf nálægt Alicante. Ferðaskrifstofunum er þó nokkur vorkunn því fátt eitt annað er í boði í beinu flugi héðan.
Því er ráð fyrir þá sem kjósa annað að skoða hvað má merkilegt finna hjá breskum ferðaskrifstofum en til London er jú hægt að komast bærilega ódýrt og millilending þar fórnarinnar virði ef næsti leggur liggur á ferskar ævintýraslóðir án þess að kosta of mikið.
Fararheill gerði leit að fimm skipulögðum ferðum sem bragð er að næsta haust og ætti að gefa áhugasömum rúman tíma til að hugsa sig um og jafnvel safna fyrir.
Það sem við fundum og þótti bragð að:
- MEXÍKÓ >> Cancún er eðalstaður sóldýrkenda og hinna sem vilja prófa sig áfram í drykkju og skemmtunum 24 tíma sólarhringsins alla ferðina. Lastminute.com er að bjóða tveggja vikna ferðir í lok október á fjögurra stjörnu strandhóteli með öllu inniföldu fyrir aðeins 224 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.
- VÍETNAM >> Elegant Travel ferðaskrifstofan er að bjóða fjórtán nátta lúxuspakka í Víetnam í allan vetur fyrir aðeins 226 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Hellingur innifalinn og gist á allsæmilegum hótelum á þremur mismunandi stöðum í þessu fagra landi; Saigon, Hanoi og Hoi An.
- TENERIFE >> Engin íslensk ferðaskrifstofa getur boðið tvær vikur á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu á Tenerife í september fyrir 152 þúsund krónur en það getur breska ferðaskrifstofan Blue Sea Holidays. Auðvitað með öllu þessu helsta eins og góðum sundlaugum og stutt frá strönd.
- EGYPTALAND >> Það er auðvelt að blóta veðri í júní þegar allir eiga von á sól og sumri um land allt. Verra er að óska sér yls og hita í desember en það er einmitt þá sem breska ferðaskrifstofan Holiday Place býður vikulangar tilboðsferðir til Sharm el Sheikh við Rauðahafið á ágætu hóteli með öllu inniföldu. Það er til mun verri tími til að komast af klakanum fyrir 89 þúsund krónur.
- GRIKKLAND >> Við vitum mætavel að Grikkland er kannski ekki heitasti staður veraldar í október en þar er samt hægt að dúllast á stuttbuxum og nærbol frameftir vetri. Ferðaskrifstofan Inspired Luxury Escape býður dvöl á grísku eyjunni Kos fram í október með mat og alles á stjörnustað fyrir 105 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Súperdíll.







