Ferðaúrval innlendra aðila næsta haust og vetur verður líklega eins og hin síðari ár bundið við örfáar fokdýrar „sérferðir, og hefðbundna áfangastaði á skíðasvæði, Kanarí og golf nálægt Alicante. Ferðaskrifstofunum er þó nokkur vorkunn því fátt eitt annað er í boði í beinu flugi héðan.

Því er ráð fyrir þá sem kjósa annað að skoða hvað má merkilegt finna hjá dönskum ferðaskrifstofum en til Kaupmannahafnar er jú hægt að komast bærilega ódýrt og millilending þar fórnarinnar virði ef næsti leggur liggur á ferskar ævintýraslóðir án þess að kosta of mikið.

Fararheill gerði leit að fimm skipulögðum ferðum sem bragð er að næsta haust og ætti að gefa áhugasömum rúman tíma til að hugsa sig um og jafnvel safna fyrir.

Það sem við fundum og þótti bragð að:

  • TÚNIS >> Tvær vikur í Túnis er fráleitt slæmur staður að vera á  seinnihluta september og taka inn sól og brúnku fyrir kaldan veturinn heima. Ferðaskrifstofan Apollo býður fjórtán daga ferð til Hammamet á sæmilegu hóteli með morgunverði fyrir 83 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.
  • TRINIDAD & TOBAGO >> Er eitthvað betra en busla fáklædd á táslum í heitu flæðarmáli í desember þegar Kári gerir sig heimakominn á Íslandi með tilheyrandi hálku og svartnætti? Tvær vikur á þessari frábæru karabísku eyju á fínu hóteli með allt innifalið fást hjá Apollo á aðeins 193 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.
  • BORNEÓ >> Gönguferðir njóta sívaxandi vinsælda og hér er ein ansi sérstök tveggja vikna ferð með Trekking Bureauet til Borneó. Hversu margir státa af gönguferðum í hitabeltisskógi eða hafa dvalið í langhúsi meðal innfæddra í skóginum? Ævintýralegur pakki en reyndar í dýrari kantinum eða um 280 þúsund krónur á mann miðað við tvo.
  • JÓRDANÍA >> Það getur Fararheill staðfest að Jórdanía er skemmtileg heimsóknar og ekki of langt að fljúga heldur. Intertravel býður ellefu daga góðan túr um helstu staði landsins í lok október fyrir 265 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Innifalið túr til bæði Palestínu og Ísrael og þannig þrjá flugur slegnar í einu.
  • BALI >> Langt að fara en þess virði þegar komið er á staðinn enda nýtur Bali ekki vinsælda fyrir ekki neitt. Gist á ágætu hóteli við góða strönd og hér er gestrisni fólki í blóð borin. Það er Top Tours sem býður slíkar fjórtán daga ferðir fram í lok nóvember fyrir 226 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

* Verð miðast við miðgengi krónu gagnvart danskri krónu klukkan 10 þann 16. júní. Gengi breytist nokkuð ört.