Það er ekki óalgengt á stærri flugvöllum heims að þurfa að standa í biðröð við öryggisleit á helstu annatímum í 20 til 30 mínútur. En farþegar sem ætla heim frá Seattle á næstunni ættu að gera svo vel og taka frá rúma klukkustund.
Þar ganga hlutirnir svo hægt fyrir sig sökum erils að dagblaðið Seattle Times greinir frá því að fjöldi fólks hafi beinlínis misst af flugi sínu undanfarna daga þar sem tafir við öryggisleit hafa verið svo miklar.
Farþegum er ráðlagt að láta ekki hina hefðbundnu tvo tíma duga fyrir brottför heldur koma allt að þremur tímum fyrr til að alveg sé nú víst að tími sé aflögu til að hlaupa út í vél.







