Óhætt er að klappa Heimsferðum smá lof í lófa. Ferðaskrifstofan er raunverulega að lækka verð á ferðum sem ekki tekst að selja upp til agna með góðum fyrirvara.
Yfir slíku höfum við hjá Fararheill lengi fárast enda stríðir það gegn öllum lögmálum að veita ekki afslætti á vöru sem nóg er til af og er að renna út á tíma. Matvöruverslanir gera það margar hérlendis og mjög margar erlendar ferðaskrifstofur leyfa fólki frekar að ferðast ódýrt en að sitja uppi með tóm flugsæti og hótelherbergi.
Heimsferðir hafa um tíma reynt að koma vikuferð til Tenerife í lóg án árangurs. Síðast á fimmtudaginn var birtist auglýsing um ferðina á 99.900 krónur miðað við tvo. Um helgina og aftur í dag er sama ferð auglýst á nýjan leik en nú hefur verðið verið lækkað niður í 84.900 krónur fyrir tvo. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem við sjáum slíka verðlækkun.
Með tilliti til að flogið er af stað nú á fimmtudag er þetta fínn afsláttur og áhugasamir strax búnir að spara sér 30 þúsund krónur. Viðskiptavinirnir glaðir og deila þeirri gleði kannski með vinum og vandamönnum sem kannski snúa viðskiptum sínum til Heimsferða næst. Allir vinna.










