Tíðindi

Lokaútkall Icelandair

  12/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Flugfélagið Icelandair selur nú síðustu sætin í síðustu ferðir sínar til Billund í Danmörku og Berlínar og Hamborgar í Þýskalandi þetta sumarið.

Hvort flugfélagið er að gefa afslátt af þessum ferðum sökum góðvildar eða hvort fylla þarf hálftómar vélar skal ósagt látið en afsláttur er gefinn af ferðum flugfélagsin frá 20. ágúst og fram til síðustu ferða um miðjan september.

Þannig kostar fargjald fram og til baka til Berlínar frá 37.700 krónum, Billund frá 32.100 krónum og Hamborgar  frá 33.300 krónum.

Gróflega má segja að afslátturinn nemi allt að 30 þúsund krónum frá hefðbundu fargjaldi og því ráð að grípa þessa gæs.

Um er að ræða ferðir frá 20. ágúst til 12. september en sá hængur á að kaupa verður farmiða eigi síðar en 19. ágúst. Þá verður og að dveljast í borgunum yfir sunnudag til að allt sé nú Icelandair að skapi.

Heimasíða Icelandair hér.