Þegar þetta er skrifað hafa velflestir íslenskir fjölmiðlar birt tilkynningu frá ferðasalanum Iceland Express þar sem félagið tilkynnir með stolti að farþegafjöldamet hafi verið sett í nýliðnum júlí. Fóru þá 95 þúsund farþegar með ferðaskrifstofunni.
Til samanburðar er nefnt að þessi farþegafjöldi sé 24 prósentum meiri en á sama tíma fyrir ári síðan. Samkvæmt útreikningum Fararheill hefur farþegafjöldinn í júlí í fyrra þannig verið kringum 74 þúsund talsins.
Hver fréttin er með tilliti til að ferðum og áfangastöðum Iceland Express fjölgaði verulega milli áranna 2010 og 2011 er illskiljanlegt. Í fyrsta sinn í ár er flogið til Chicago, Boston og Edinborgar auk þess sem flogið var til Stokkhólms að nýju. Þá var ferðum fjölgað mjög til New York.
Vitaskuld fjölgar farþegum.






