Tíðindi

Lofa draumaferðum á lægra verði

  16/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Ferð.is hefur tekið til starfa hérlendis en sú er frábrugðin flestum öðrum að sú er aðeins starfrækt á netinu. Er reyndar ekki um nýja ferðaskrifstofu að ræða í þeim skilningi orðsins því þetta er útibú frá Vitaferðum sem aftur er í eigu Icelandair.

Lofa aðstandendur ódýrari ferðum en gengur og gerist samkvæmt auglýsingum og er það vel enda má deila um hversu hagstæð tilboð ferðaskrifstofa hérlendis eru.

Samanburður er nokkuð auðveldur gagnvart Ferð.is því þar eru í boði sömu ferðir og Vita.is býður upp á og sjálfsagt fyrir neytendur að bera saman verðin.

Við fyrstu sýn virðast prísar Ferð.is vera 20 til 30 þúsund krónum ódýrari en hjá systurfyrirtækinu en þó ekki ódýrari en tilboðsferðir annarra ferðaskrifstofa landsins.

Heimasíða Ferð.is hér.