Sá sem heldur því fram að íslenskar ferðaskrifstofur bjóði gott úrval ferða hefur sennilega ekki farið mikið af landi brott síðastliðin 40 ár eða svo.
Ómögulegt er að halda fram öðru en einsleitar ferðir séu ár eftir ár í boði. Nægir að nefna steingeldar ferðir til Benídorm, Mallorca eða Costa del Sol sem um áraraðir var það eina sem íslenskar fjölskyldur gátu leyft sér í beinu leiguflugi.
Ástandið hefur batnað töluvert en í samanburði við erlendar ferðaskrifstofur eru þær íslensku enn í torfbæjum. Aðrar ferðir en þessar hefðbundnu kallast allar „ævintýraferðir“ eða „sérferðir“ og kosta eftir því.
Sé fólk reiðubúið að leggja aðeins meira á sig í upphafi ferðar er hins vegar hægt að verða sér úti um töluvert ógleymanlegri ferðir á ódýran hátt en enn eitt sumarið á bakinu á ströndinni við Benídorm eða Ensku ströndinni á Kanaríeyjum.
Fjöldi ferðaskrifstofa erlendra bjóða nefninlega óhefðbundnar ferðir í massavís. Ferðir sem klárt er að standa fólki ljóslifandi í minni til dauðadags. Er þá ekki verið að tala um „stórkostlegar sérferðir“ á borð við vínsmökkunarferðir til Champagne í Frakklandi eða gönguferð um tyrknesk fjöll.
Meðal þess sem í boði er má nefna hákarlaævintýri undan ströndum S. Afríku, prufukeyrslu á Ferrari línunni eins og hún leggur sig, teygjustökk fram af háhýsum eða siglingu á hraðskreiðustu bátum sem til eru. Auðvitað kostar þetta sitt en lífið er stutt en heimurinn ekki og margir hafa fengið upp í háls af legum á meðalgóðum troðfullum spænskum eða portúgölskum ströndum.
Ein virtasta breska ferðaskrifstofan sem sérhæfir sig í óvenjulegum uppákomum er Experience-World en þeir bjóða reyndar einnig hefðbundari ferðir eins og sjá má á heimasíðu þeirra hér. Margar slíkar er að finna víða sem hafa eitt og annað sérsvið.







