Eitt ár er nú liðið frá því að Fararheill.is fór fyrst í loftið og finnst ritstjórn þjóðráð að óska sjálfri sér til hamingju með þann áfanga. Um leið ber að þakka þeim lesendum er sýnt hafa því áhuga sem við erum að gera.
Blóm og kransar eru afþakkaðir enda langt í frá að við séum að pakka saman. Þvert á móti glittir loks í að raunverulega verði hægt að tala um alvöru samkeppni á flugmarkaðnum fyrir Íslendinga. Tilkoma Wow Air skiptir þar töluverðu máli en ekki síður ákvörðun easyJet að hefja áætlunarflug hingað í vor.
Ekki svo að skilja að ritstjórn hafi neitt á móti Icelandair eða Iceland Express. Hið fyrrnefnda hefur vissulega okrað á ferðum sínum um árabil og ekki eru mörg ár síðan það kostaði handlegg, fótlegg og alla innistæðuna á bankabókinni að fljúga til og frá landinu. Hið síðarnefnda hefur lent í verulegum vandræðum síðustu misserin sem engum er um að kenna nema þeim sjálfum en um það verður ekki deilt að tilkoma þess flugfélags hefur haldið verði á utanlandsferðum niðri.
En að kalla samkeppni tveggja aðila samkeppni er kjánalegt. Fákeppni er nær lagi og þá aðeins á þeim flugleiðum sem bæði notast við. Á öðrum leiðum er óhætt að kalla hlutina réttum nöfnum og tala um einokun. Þetta staðfestir úttekt um samkeppni flugfélaganna tveggja sem Fararheill greindi frá fyrir nokkru.
Sömuleiðis hefur ritstjórn fengið harða gagnrýni fyrir gagnrýni sína á ferðaskrifstofur landsins og lögsóknum verið hótað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þar með er ekki heldur sagt að okkur líki ekki við ferðaskrifstofurnar. Við höfum aðeins bent á það að pakkaferðir héðan eru oftar en ekki fáránlega mikið dýrari en í öllum okkar nágrannalöndum. Hefur ritstjórn bent á fjölmörg slík dæmi og mun halda því áfram.
Í grunninn snýst þetta alltaf um að hvetja flugfélögin og ferðaskrifstofurnar til að gera betur og sá forstjóri ferðaþjónustufyrirtækis sem lítur á skrif Fararheill sem ógnun fremur en tækifæri er sennilega í röngu starfi að okkar mati.
Takk fyrir okkur.
Ritstjórn






