Tíðindi

Lítill áhugi á Ólympíuleikunum í London

  16/02/2012janúar 9th, 2015No Comments

Halda mætti að Íslendingar myndu í auknum mæli sýna því áhuga að sækja Ólympíuleikana í London næsta sumarið því ár og dagur er síðan þeir miklu leikar voru haldnir svo nálægt og langt í að það gerist aftur. Það er hins vegar afar takmarkaður áhugi á því samkvæmt nýrri könnun.

Leiðir könnun Fararheill í ljós að þrátt fyrir að einungis sé um þriggja stunda flug til London þar sem leikarnir hefjast í lok júlí er meirihluti, 63 prósent, alls ekkert spenntur fyrir þeim viðburði. 33 prósent segjast hafa áhuga að sækja leikana en að það sé of dýrt og einungis fjögur prósent ætla án efa til London og fylgjast með.

Enn er óljóst hverjir eða hversu margir íslenskir íþróttamenn taka þátt á leikunum í sumar en það liggur ekki fyrir fyrr en fer að vora á farsæla Fróni. Ekki er ólíklegt að þeim fjölgi er taki stökkið til London ef margir íþróttamenn héðan ná tilsettu lágmarki til að taka  þátt.

Alls greiddu 198 aðilar atkvæði að þessu sinni en taka ber niðurstöðunum með fyrirvara þar sem um vefkönnun er að ræða. Hún gefur engu að síður ákveðnar vísbendingar.