Það eru kannski engar mega útsölur í Boston í maí og júní en þangað er komist þann tíma aðeins ódýrar en venjulega næsta sólarhringinn með Icelandair.

Skottúr til Boston er nú aðeins ódýrari en ella

Skottúr til Boston er nú aðeins ódýrari en ella

Býður flugfélagið fjóra áfangastaði aðeins ódýrar en venjulega tímabundið til hádegis á morgun 17. febrúar. Eru það norsku borgirnar Stavanger og Þrándheimur, Amsterdam í Hollandi og Boston.

Til Stafangurs og Þrándheims er komist aðra leiðina fyrir 14.900 krónur og vafalítið eru einhverjir þarna úti sem vilja aðeins komast aðra leiðina. Fyrir hina kostar það 28.400 krónur fram og tilbaka. Noregur á vorin er snilldin ein engu síður en á Íslandi og í maí má einmitt upplifa Þjóðhátíðardag Norðmanna þann 17. maí. Þá er bros á flestra vörum og gaman að vera til. Tilboðin gilda til Stafangurs frá 29. apríl til 8. júní og til Þrándheims milli 7. maí og 9. júní. Bara hafa nóga seðla í veskinu því landið er dýrt heim að sækja.

Amsterdam er sömuleiðis ekki létt á pyngjunni en þangað er í boði að fljúga frá 1. apríl til 15. júní fyrir 16.900 krónur og fyrir 34.900 krónur heim aftur. Sé fólk í borginni eða landinu annan laugardaginn í maí getur fólk upplifað hinn merkilega Hjólreiðadag sem Hollendingar taka mjög alvarlega. Sé fjöldi hjólandi einstaklinga yfirgnæfandi alla jafna er ráð að bíða eftir þessum degi.

Boston er sennilega helsta verslunarborg Íslendinga þessi dægrin enda verðlag öllu betra en víðast hvar hérlendis. Icelandair býður nú ferðir til Boston frá 3. apríl til 15. júní fyrir 27.900 út og 50.600 krónur báðar leiðir. Þá er margt vitlausara en skella sér á tónleika með Red Hot Chilli Peppers þann 7. maí á heimavelli Boston Celtics í TD Banknorth Garden.

Heimasíða Icelandair hér.