Tíðindi

Lítið flugfélag, stórar hugmyndir

  03/10/2009maí 12th, 2014No Comments

Ekki er langt síðan Iceland Express tilkynnti um fyrirhugaðar ferðir sínar til New York á næsta ári. Vakti það athygli innlendra miðla en þó eingöngu vegna þess að einhverra hluta vegna telja blaðamenn margir að Iceland Express sé ennþá lágfargjaldaflugfélag. Hafi svo verið var um stórfrétt að ræða því ekkert lágfargjaldaflugfélag í Evrópu hefur þorað að leggja út í slíkar ferðir.

En fréttin var ekkert sérstök vegna þessa að fargjöld Iceland Express eru fyrir löngu  hætt að vera sérstaklega ódýr og fyrirtækið sjálft löngu hætt að kynna sig sem slíkan valkost.

Þess vegna vakti mikla athygli í dag þegar glænýtt flugfélag í Noregi, Feelair, sem gefur sig út fyrir að vera lágfargjaldaflugfélag tilkynnti um ódýrar ferðir til New York og Bangkok frá Osló og Stokkhólmi á næsta ári. Hversu ódýrar lá ekki ljóst fyrir samkvæmt frétt Dagens Næringsliv en lofað er töluverðum afslætti frá því sem tíðkast nú á þessum leiðum.

Sé þetta rétt skapast þarna nýr valkostur fyrir Íslendinga því héðan er flogið beint til Noregs og þó úrval ferða héðan sé alveg bærilegt miðað við alla fákeppnina á markaðnum þá þurfa landsmenn að punga duglega út standi hugur til að fara eitthvað annað en á hina hefðbundnu áfangastaði í Evrópu.

Heimasíða Feelair.