Farþegar um Leifsstöð þurfa að gjöra svo vel og að fara úr skóm sínum við öryggisleit sem er nokkuð sem tíðkast nánast hvergi annars staðar en í Bandaríkjunum samkvæmt reynslu ritstjórnar Fararheill.
Þetta eðlilega tefur öryggisleit verulega og er til óþæginda fyrir farþega auk þess sem lykt er á stundum ansi vond af fótum fólks.
Segir Stefán Thordersen, yfirmaður öryggismála í Leifsstöð, við Fararheill ástæðuna þá að bandarísk flugmálayfirvöld geri um þetta kröfur enda sé öryggi betur tryggt en ella fari farþegar úr skóm sínum. Þá telur hann ekki útilokað að þetta þýði hraðari afgreiðslu en ekki því skófatnaður setji viðvörunarbúnað í öryggishliðum oft af stað.






