Tíðindi

Leiguverð á Spáni svipað og fyrir ári

  11/04/2012No Comments

Milli 30 og 70 þúsund krónur mun það kosta landann að leigja sér meðal íbúðarkytru í viku í eða við Costa Blanca ströndina á Spáni þessa vertíðina samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill. Er það gróflega svipað verðlag og fyrir ári.

Algengt leiguverð fyrir íbúð á Costa Blanca þetta sumarið er 40 til 50 þúsund krónur miðað við auglýstar eignir

Margir hugsa sér gott til glóðar nú þegar víða er minna um peninga í veski að leigja sér íbúðir erlendis og spara þannig hótelkostnað.

Þá eru margir sem horfa til Costa Blanca á Spáni þar sem er að finna þúsundir eigna í eigu Íslendinga. Flestar eru þær í bænum Torrevieja en fjölmargar einnig í og við Orihuela. Víðar má þó finna íbúðir Íslendinga á þessu svæði.

Fyrir utan þá aðila sem ekki leigja íbúðir sínar á Spáni út má finna að minnsta kosti tvo staði þar sem Íslendingar auglýsa íbúðir eða hús sín til leigu í skemmri eða lengri tíma. Eru það annars vegar vefmiðillinn Costablanca.is og hins vegar Félag húseigenda á Spáni.

Á báðum stöðum eru reglulega til leigu íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum og þar má, þegar þetta er skrifað, finna kytrur frá 25 þúsund krónum ódýrast og upp í hundrað þúsund krónur fyrir viku í einbýli skammt frá Cabo Roig.

Skoðun á erlendum leigumiðlunum leiðir hið sama í ljós meira og minna. Fáar eignir finnast á vinsælum stöðum undir 30 til 40 þúsundum að lágmarki fyrir vikuna.