Tíðindi

Risaskjálfti og flóðbylgja á Indlandshafi

  11/04/2012No Comments

Stór jarðskjálfti, 8,7 á Richter, varð í hafinu úti fyrir ströndum indónesísku eyjarinnar Súmötru fyrir stundu. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út en staðsetning skjálftans er ekki fjarri þeim stað er setti af stað flóðbylgju árið 2004 er dró 200 þúsund manns til dauða í fjórtán löndum.

Svona var útlits á eyjunni Súmötru eftir risaskjálftann og flóðbylgjuna árið 2004. Er annað eins að gerast nú?

Ólíkt því sem þá var er viðvörunarbúnaður til staðar í öllum löndunum við Indlandshafið og gellur flóðbylgjuviðvörun við um leið og stór skjálfti mælist.

Hætt er við að Bande Aceh í Indónesíu gæti aftur orðið illa úti ef raunveruleg flóðbylgja er á leiðinni en jafnframt eru vinsælar ferðamannastrendur víða við Indlandshaf í hættu ef flóðbylgjan er raunveruleg og svipuð á stærð og sú sem setti allt á annan endann árið 2004. Þessi skjálfti er þó eilítið minni en skjálftinn 2004 sem mældist 9,1 á Richter.

Frekari upplýsingar birtar hér eftir því sem fregnir berast.