Tíðindi

Milljarðatap Iceland Express

  11/04/2012No Comments

Fullyrt er að Iceland Express hafi tapað sem nemur tæpum þremur milljörðum króna á síðasta ári.

Iceland Express tapaði tæplega þremur milljörðum króna á síðast reikningsári

Skýrir Markaður Fréttablaðsins frá þessu og vísar til heimilda en ársreikningur Iceland Express fyrir síðasta ár hefur þó ekki verið birtur.

Nam tapið alls 2,7 milljörðum króna og að eigandinn, félagið Fengur í eigu Pálma Haraldssonar, hefði afskrifað hlutafé í fyrirtækinu fyrir tvo milljarða.

Félagið Fengur skilaði ársreikningi sínum fyrir 2010 fyrir stuttu en þar kemur fram að einu eignirnar voru Iceland Express og flugfyrirtækið Astreus sem síðan er farið á hausinn.

Kemur fram í áritun endurskoðanda Fengs um það ár að atburðir sem áttu sér stað eftir reikningsskil hafi valdið því að rekstrarhæfi félagsins sé brostið nema til komi nýtt eigið fé eða skuldum verði breytt í eigið fé.

Síðasta ár einkenndist af miklum vandræðum Iceland Express. Þrívegis var skipt um forstjóra og miklar tafir og seinkanir gerðu það að verkum að fyrirtækið naut afar lítils trausts í kjölfarið.

Tekist hefur að snúa skútunni til betri vegar rekstrarlega að minnsta kosti en stundvísi félagsins nú ágæt og vélar þeirra betri nú en áður.