Þetta gat bara ekki gengið lengur! Heil Leifsstöð full af verslunum sem gengið hafa miður vel eftir bankahrunið þar sem Íslendingar á leið um stöðina eiga ekki lengur fulla vasa fjár til að spreða í varning, glingur og áfengi.

Vöruúrval á eina alvöru millilandaflugvelli Íslands miðast nú við útlendinga en ekki Íslendinga. Mynd af vef Keflavíkurflugvallar
Þá er bara að breyta viðskiptamódeli Leifsstöðvar, henda Íslendingum til hliðar og taka mest mið af þeim erlendu ferðamönnum sem um Leifsstöðina fara í framtíðinni. Íslendingarnir eru einfaldlega ekki nógu eyðslufrekir.
Þetta er kjarninn í máli Björns Óla Haukssonar, forstjóra Isavia, sem rekur flugvelli landsins, þar með talinn Keflavíkurflugvöll, en hann segist í viðtali við tímaritið Airport World ekki hafa neinar efasemdir um að sú ákvörðun að taka frekar mið af erlendum farþegum en innlendum í framtíðinni eigi eftir að reynist Isavia heilladrjúgt skref.
Þar vísar Björn Óli til þess að tekin hefur verið sú ákvörðun að miða vöruúrval í Leifsstöðinni við neyslu erlendra ferðamanna en ekki íslenskra eins og reyndin hefur verið frá upphafi. Tiltekur hann að útlendingar séu nú fleiri en Íslendingar á ferð um Leifsstöð og því sé þetta eðlilegt skref til að græða meiri peninga.
Spurningar vakna vegna málsins. Hvort lítil sala verslana síðustu árin hafi ekki haft eitthvað með að gera að verslanir í Leifsstöð hafa lengi vel verið í daprari kantinum og fjölbreytni ekki fyrir að fara? Hvort hagnaður og peningar eigi að ráða öllu um hvernig eina alvöru millilandaflugvelli Íslands er stjórnað?






