Tíðindi

Erfitt ár Iceland Express að baki

  12/04/2012No Comments

Forsvarsmenn Iceland Express viðurkenna fúslega að síðasta rekstrarár flugfélagsins hafi verið erfitt og dýrt en segja í tilkynningu að fjallvegurinn sé að baki og nú sigli flugfélagið með góðum vindi.

Upp á við hjá Iceland Express eftir erfitt og magurt ár í fyrra

Birtust fregnir af því í vikunni að rekstur Iceland Express hefði verið afar erfiður árið 2011 og hafi meðal annars eigandi félagsins, Pálmi Haraldsson í Feng, þurft að leggja félaginu til umtalsverða fjármuni vegna þess.

Því harðindaskeiði er þó lokið er fullyrt af hálfu flugfélagsins og það sagt hafa gerst strax síðasta haust þegar skipt var um yfirstjórn fyrirtækisins og við tók sitjandi forstjóri Skarphéðinn Berg Steinarsson.

Viðsnúningur hafi orðið á miðasölu til hins betra, stundvísi véla Iceland Express sé nú mun betri og vélar þær sem Iceland Express notar séu nýrri og betri en áður var. Séu menn því hvergi bangnir á þeim bænum enda sýni bókanir umtalsverða aukningu næstu misserin.