Ritstjórn Fararheill hefur eytt ófáum andvökunóttum við ýmis konar úttektir gegnum tíðina og þá ekki síst við samanburð á þeim fjölmörgu hótelbókunarvélum sem í boði eru fyrir þá sem ferðast á eigin spýtur. Niðurstaðan er sjaldan afgerandi en þó stendur ein bókunarvél upp úr fjöldanum heilt yfir: Hotelscombined.com.

Að mati Fararheill ein allra besta hótelleitarvélin á netinu. Þú kemst beint í hana á vef Fararheill
Nú býður Fararheill beinlínutengingu við vef Hotelscombined á vef Fararheill. Aðeins þarf áfangastaðinn og dagsetningar og voilà!
Yfirleitt hvetur ritstjórn áhugasama til að taka tíma til að gera verðsamanburð bæði á flugi og hóteli hvert sem farið er enda getur það sparað tugi þúsunda sé um fjölskyldur að ræða.
En Hotelscombined sparar mikið til þann tíma því ólíkt öðrum hótelleitarvélum leitar Hotelscombined á þeim öllum. Vefurinn sparar því tíma við að bera saman verð á sömu eða svipuðum hótelum og reynsla Fararheill er að hann skilar undantekningarlítið allra besta verði í flestum tilvikum.
Ekki nóg með það heldur finnur Hotelscombined einnig aðra gististaði en hótel á viðkomandi svæðum. Leiguíbúðir, mótel og eða aðra sérstaka gistimöguleika.
Í öllu falli er óþarfi að taka okkar orð fyrir ágæti Hotelscombined. Þú sannfærist fljótt.






