Ávallt geta ófyrirséðir hlutir eins og tafir, seinkanir og niðurfellingar orðið í flugrekstri. Í slíkum tilfellum geta farþegar í ákveðnum tilvikum átt rétt til bóta. Þeir hins vegar standa eftir algjörlega réttlausir þegar flugfélag/ferðaskrifstofa ákveður að flýta brottfarartíma sísona.

Tafir og seinkanir eru eitt en eiga farþegar ekkert skilið aukalega þegar brottför er flýtt um nokkrar klukkustundir?
Slíkt gerðist á þriðjudaginn var þegar farþegar Sumarferða á Tenerife þurftu að druslast á flugvöllinn þremur klukkustundum fyrr en flugáætlun sagði til um. Í ljós kom að flugrekandinn, Iceland Express, hafði breytt flugáætlun sinni með þetta litlum fyrirvara að farþegar Sumarferða fengu ekkert að vita fyrr en kvöldið fyrir brottför. Tekið skal fram að Iceland Express er eigandi Ferðaskrifstofu Íslands sem Sumarferðir heyra undir.
Tvær fjölskyldur sem Fararheill hafði spurnir af voru nett ósáttar vegna þessa bæði vegna þess að þremur klukkustundum skemur var hægt að verja með sól á kropp og koll á eldfjallaeyjunni fallegu en ekki síður vegna þess að fyrirvarinn sem farþegar fengu var lítill sem enginn að þeirra sögn.
Og til sanns vegar má færa, jafnvel þó þrjár klukkustundir til eða frá skipti ekki öllu máli, að engu fyrirtæki á að leyfast að víkja frá því sem viðskiptavini hefur verið lofað.
Hrönn Johannsen, þjónustustjóri hjá Sumarferðum, staðfestir í samtali við Fararheill að tilvik sem þessi séu tiltekin í ferðaskilmálum ferðaskrifstofunnar og farþegar eigi ekki rétt á neinum bótum sérstaklega vegna slíks.






