Enginn vafi leikur á hvar Íslendingar á faraldsfæti til London verða sér úti um allra ódýrustu bílaleigubílana. Úttekt Fararheill.is sýnir glögglega að besta verðið fæst gegnum vef Icelandair.
Bar ritstjórn Fararheill saman verð hjá þeim bílaleigum sem flugfélögin Wow Air, Iceland Express, Icelandair og easyJet eru í samstarfi við og kannaði hvað það kostaði að leigja þrjár mismunandi tegundir bifreiða í vikutíma frá 2. júlí til 9. júlí en í öllum tilfellum voru bílarnir leigðir og þeim skilað á Gatwick flugvelli.
Í stuttu máli pakkar Icelandair öllum hinum flugfélögunum saman og það gera þeir með því að vera í samstarfi við Carcrawler.com. Hin flugfélögin eru öll í samkrulli við ákveðnar bílaleigur; Wow Air hjá Avis, easyJet hjá Europcar og Iceland Express hjá Auto Escape. Munurinn felst í að Carcrawler yfirfer verð hjá öllum bílaleigum í viðkomandi landi og þannig fæst fínasti samanburður.
Af meðfylgjandi töflu má glögglega sjá að miklu getur munað. Við samanburðinn var aðeins litið til heildarverðs en ekki tekið tillit til ýmissa sértilboða sem í gangi eru af og til hjá öllum helstu bílaleigum. Þá skal og hafa í huga að ekki er í öllum tilfellum um sömu bíla að ræða heldur eingöngu bíla í sama stærðar- eða lúxusflokki.
* Úttektin er gerð kl 11 þann 7. apríl 2012 og tekur mið af gengi krónu gegn evru og pundi þann tíma.






