Tíðindi

Heiti pottur Iceland Express troðinn

  07/04/2012janúar 9th, 2015No Comments

Flugfar til Gautaborgar á 12.700 krónur sleppur. Sömuleiðis flug til Edinborgar á sama prís. Það er meðal þess sem er í boði í Heita potti Iceland Express þessa stundina.

Þangað fara ýmis tilboðsfargjöld flugfélagsins og nú má þar finna ferðir til og frá Keflavík og hinna ýmsu staða langt fram á sumarið á öllu lægra verði en gengur og gerist. Á móti kemur reyndar að aðeins er hægt að bóka eitt einasta sæti í einu og engin trygging fyrir að til sé nema eitt sæti á umræddu verði.

Frá Íslandi er aðallega um flug til Edinborgar, Kölnar eða Gautaborgar að ræða en sé fólk ytra og vilji komast heim er hægt að negla tilboðsfargjöld frá Berlín, Vilníus og Stansted og Gatwick í London. Frá Gautaborg og Edinborg er hægt að komast heim á leið á undir tólf þúsund krónum sem verður að teljast prímamál.

Heiti potturinn finnst hér.