Allir sem heimsótt hafa Feneyjar vita að þar fer ekki þumlungur til spillis og fyrir löngu síðan orðið vonlaust að byggja þar og bæta til að koma til móts við síaukinn fjölda ferðamanna. Vonlaust vegna þess að nánast allur bærinn og lónið með er á heimsminjaskrá og breytingar óleyfilegar.
Nú gefst hins vegar auðmönnum tækifæri til að láta til sín taka því ítölsk stjórnvöld eru að setja eina af eyjunum í mynni Feneyjarlóns á uppboð. Tugmilljarðamæringar geta því hætt að láta sig dreyma um einkaeyju á besta stað og látið drauminn verða að veruleika.
Poveglia heitir eyjan og er örskammt frá Markúsartorginu þaðan sem vel sést til hennar og bátstúr tekur einungis tvær til þrjár mínútur á milli.
Eyjan er bæði falleg og tiltölulega stór og rúsínan í pylsuendanum kannski sá að nokkrar gamlar en stórar byggingar fylgja með í kaupunum. Gamall spítali og leifar gamals virkis standa á eynni og gætu nýst nýjum eigendum í framtíðinni.
Þó er ólíklegt talið að það verði heimamenn eða Ítalir sem áhuga hafi á kaupum á Poveglia. Það helgast af því að meðal íbúa hér þykir reimt á eynni og það tengt því að hér var lengi vel sóttvarnarmiðstöð og seinna meir geðveikraspítali sem slæmum sögum fór af. Já, og hér voru einhver hundruð manna hengd á sínum tíma líka. Margir þeirra dauðu ósáttir við sitt og láta víst sitt versta í ljós þegar hér dimmir hvern dag.








