Tíðindi

Land undir fót fyrir lágmarksprís

  05/12/2011No Comments

Fyrir stundu hóf ferðasalinn Iceland Express að selja miða til London, Kaupmannahafnar og Berlínará svokölluðum starfsmannakjörum. Þannig komast áhugasamir í erlenda jóla- eða áramótastemmningu fyrir 4.576 krónur plús skatta og gjöld.

Það verður vart ódýrara að bregða undir sig betri fætinum erlendis en þessi jólin og það á starfsmannakjörum hjá Iceland Express

Um er að ræða takmarkaðan fjölda miða á svokölluðum starfsmannakjörum eða á sama verði og starfsfólk Iceland Express kaupir sína miða alla jafna en tilefnið er aukið sætaframboð í nýjum flugvélum samstarfsaðilans CZA Airlines

Ritstjórn Fararheill getur vottað að þessar nýju vélar, Airbus A320, eru mun betri en fyrri Boeing vélar sem fyrirtækið notaði áður. Það á fyrst og fremst við um þægindi því sætis- og olnbogarými er nú mun betra en vélar CZA eru auk þess mun nýlegri.

Fimm þúsund sæti eru í boði á þessum prís en fljúga verður í þessum mánuði og kaupa miðann fyrir miðnætti í kvöld en þá lýkur sölu.

Hvað svo sem fólki finnst um Iceland Express eftir það sem á undan er gengið er engum blöðum um að fletta að sé áhugi að anda að sér heimsborgarstemmningu þessi jólin eða áramótin án þess að tæma séreignasparnaðinn er tækifærið núna.

Heimasíða Iceland Express hér.

Til umhugsunar: Sé hugmyndin að skreppa erlendis til jólagjafakaupa er Berlín áberandi besti kosturinn af þessum þremur borgum. London og Kaupmannahöfn eru báðar almennt mun dýrari en Berlín.