Tíðindi

Óhagkvæmt að keppa á íslenskum flugmarkaði

  05/12/2011júlí 13th, 2021No Comments

Ekki virðist vera hægt fyrir ferðaþjónustufyrirtæki að ná eðlilegri afkomu eða njóta heilbrigðs vaxtar hérlendis að mati forstjóra Primera Travel Group. Kom sá engu að síður fótunum undir sig með sölu ferða til Íslendinga.

Bullandi gangur er á ferðaskrifstofum Primera Travel Group erlendis. Ekki stendur til að taka þátt í flugsamkeppni til og frá Íslandi

Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Primera, sem á og rekur fjölda ferðaskrifstofa, fyrir utan að eiga sitt eigið flugfélag, að ekki sé í bígerð að fara að keppa í farþegaflugi til og frá Íslandi. Það sé einfaldlega óhagkvæmt.

Primera hyggst þó í samstarfi við Heimsferðir, sem er að fullu í eigu Primera, bjóða flug á tiltekna áfangastaði á næsta ári.

Primera rekur sem fyrr segir ferðaskrifstofur í Noregi, Danmörku, Finnlandi og í Svíþjóð auk þess að vera með rekstur hér heima.

Hófst útrás Andra árið 2005 og vöxtur fyrirtækisins verið hraður síðan. Andri er sonur Ingólfs Guðbrandssonar eins frumkvöðuls utanlandsferða Íslendinga á sínum tíma.